Skip to content
zeno
Create a Station
Explore
Religious
Music
News
Podcasts
Bible
By Genre
By Location
By Language
Download App
Opens in a new window
Toggle Sidebar
zeno
RÚV
Spegillinn
News & Politics
Icelandic
Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.
Website
Episodes
Episodes
300
20 August 2026
Evrópusambandið og launþegar, farsóttasáttmáli sem steytt hefur á skeri.
Hvaða áhrif kann aðild að Evrópusambandinu að hafa á íslenska launþega? Svarið við þeirri spurningu er kannski ekki einfalt. Nær öll löggjöf Evrópusambandsins um réttindi launþega hefur þegar verið tekin upp á Íslandi í gegnum samninginn um Evrópska efnahagssvæðið. Hrafnhildur Kristjánsdóttir lögfræðingur ræðir vinnurétt. Farsóttasáttmáli Sameinuðu þjóðanna er nánast tilbúinn en fæst ekki...
20 min
19 August 2026
Um stýrivaxtahækkun Seðlabankans
Peningastefnunefnd Seðlabankans tilkynnti í morgun hækkun stýrivaxta úr 7.75 prósentum í átta prósent. Það er ekki hægt að segja að þetta hafi komið á óvart, miðað við þróun verðbólgu og fleiri þátta, en engu að síður voru uppi ákveðnar væntingar um að vextirnir héldust óbreyttir. Verðbólgan er það sem talað er mest um í tilkynningu Peningastefnunefndar bankans í dag. Hún hefur verið yfir 5% það...
20 min
18 August 2026
Milljarðauppbygging varnarinnviða á Íslandi og þúsundir stefna Facebook og Instagram.
Tugir milljarða fara í uppbyggingu margskonarinnviða á Íslandi þessi misserin. Íslenskir ráðamenn og yfirhershöfðingi NATO segja mikilvægi Íslands aukast vegna stöðu heimsmála og fjárfestinga þörf. Við skoðum hvaða verkefni eru hafi eða að hefjast. Þúsundir mála hafa verið höfðuð í Bandaríkjunum á hendur Meta, móðurfyrirtæki Feisbúkk og Instagram vegna þess að börn og unglingar séu lokkuð að...
20 min
17 August 2026
Aðildarviðræður eða aðlögunarviðræður og gróðureildar geisa í Evrópu
Svo mjótt er á munum milli þeirra sem ætla að segja já og nei við því að Ísland hefji á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið að ekki er hægt að segja til um hvernig fer 29. ágúst . Í síðasta þjóðarpúlsi Gallups sagðist rétt rúmur helmingur, fimmtíu og eitt og hálft prósent, myndu segja já en fjörutíu og átta og hálf prósent nei. Þessi munur er ekki marktækur. Um sjö prósent sögðust ekki hafa...
20 min
14 August 2026
Óhagstæður viðskiptajöfnuður, erfitt að bóka tíma hjá heilsugæslunni og gervigreindin bókar í ræktina
Vöruskiptajöfnuður síðustu tólf mánuði var óhagstæður um 441,9 milljarða króna sem er 63 milljörðum króna hagstæðari jöfnuður en á tólf mánaða tímabili ári fyrr. Ævar Örn Jósepsson veltir því fyrir sér með Katrínu Ólafsdóttur, dósent við viðskipta- og hagfræðideild Háskólans í Reykjavík hvað það þýðir. Mörgum hefur reynst erfitt að bóka tíma hjá heilsugæslunni á höfuðborgarsvæðinu því fólki sem...
20 min
13 August 2026
Verðbólgan og vinnumarkaðurinn, drónar og fjölþáttaógnir.
Það er hvorki fyrsti kostur launþega né atvinnurekenda að segja upp samningum í september en launþegar geta ekki einir setið uppi með kostnað af verðbólgunni, segir ASÍ. SA telur aftur á móti að kaupmátturinn hafi skilað sér. Óljóst er hvort samningum verður sagt upp í haust.Drónar voru eitt sinn skemmtilegt leikfang en hugvitsamir hermenn breyttu þeim og nú eru drónar notaðir í stríði og...
20 min
12 August 2026
Sólmyrkvinn
Spegill miðvikudagsins 12. ágúst var helgaður almyrkva á sólu.Rætt var stuttlega við Runólf Þórhallsson sviðsstjóra Almannavarna hjá ríkislögreglustjóra um viðbúnað vegna sólmyrkvans og þess fjölda gesta og viðburða sem honum tengjast. Síðan var komið að myrkvanum sjálfum og rætt við Gunnlaug Björnsson stjarneðlisfræðing og prófessor við Háskóla Íslands, en hann fór fyrir hópi þeirra sem reiknuðu...
20 min
11 August 2026
Evrópusambandið og stjórnarskráin, varnir Færeyja og úlfur veldur usla á Jótlandi
Ef innganga í Evrópusambandið yrði samþykkt verður að breyta ákvæðum i stjórnarskrá og leyfa framsal valds til þess; en það er flókið verkefni og alls ekki einhlítt hvernig að þvi yrði staðið segir Davíð Þór Björgvinsson lögfræðingur. Danir vilja auka viðveru hers í Færeyjum – áforma æfingar, eftirlitsflug orrustuþotna og heimsóknir herskipa. Heini í Skorini, dósent í alþjóðastjórnmálum við...
19 min
10 August 2026
Hvert og hve margir verða á ferðinni á degi sólmyrkvans og flóttinn til Ceuta
Miðvikudagurinn verður prófsteinninn á hvernig undirbúningur fyrir almyrkva á sólu hefur tekist til. Það var reynt að horfa til reynslu annarra af álíka viðburðum, segir Dagbjartur Brynjarsson sérfræðingur á sviði öryggismála hjá Ferðamálastofu en sólmyrkvinn er einstakur atburður og ekki raunhæft að miða innviðauppbyggingu við einn dag. Stóri óvissuþátturinn á þessum degi sé kannski hvernig...
20 min
07 August 2026
Sólmyrkvinn og veðrið
Tugir þúsunda bíða spenntir eftir sjónarspilinu mikla, sólmyrkvanum, næstkomandi miðvikudag. Upplifunin mun óhjákvæmilega markast mjög af veðrinu, heiðskír himinn er óskastaðan en dumbungur öllu verri, að ekki sé minnst á svargráa og regnbólgna kólgubakka. En það er ekki bara veðrið sem hefur áhrif á upplifun fólks á almyrkvanum - hann hefur líka áhrif á veðrið. En hvernig? Spegillinn bar það...
9 min